Hæ er að reyna að botna í hvernig þetta virkar.

Af okkur er allt ok að frétta. Espen er að undirbúa fertugs afmæli sitt í nóvember. Hann ætlar að leigja veitingastað og halda veislu fyrir góða vini. Hann er búin að reyna að ná sambandi við þig Bjarni á mail. Er hann með rétt heimilisfang. Gott að heyra að þér gengur vel. Stella biður að heilsa. M


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Gaman að heyra/lesa af ykkur. Okkur pabba líður bara vel og Bjarti sömuleiðis. Við vorum að fá meil frá Bandaríkjunum með fyrirspurn um selaskoðunina. Er að láta þýða upplýsingar um næsta sumar á ensku sem verða senda út. Þetta er fyrir ferðahandbók sem á að koma út vestra næsta vor og selaskoðunin þykir afar athyglisverð. Svo erum við komin með tengilið í Ungverjalandi sem kom hingað í sumar. Ungverjar eru að efnast og þeir eru mjög spenntir fyrir Íslandi. Finnst náttúran áhugaverð og selurinn alveg spes. Það er nethönnuður (ekki Bjarni) með reynslu í markaðssetningu sem tekur heimasíðuna í gagn á næstunni og kemur okkur inn í leitarsíður og svo mun hann gera bækling fyrir Áka ehf. Hann kemur sennilega inn sem hluthafi og er vinur hjónanna sem eru að koma inn í fyrirtækið sem meðeigendur og til að vinna. Um helgina var svo gert tilboð í 19 tonna trébát sem ætlunin er að gera út á sjóstöng. Hann verður leigður á tvennan hátt. Það er með skipstjóra, aðstoðarmanni og sjóstöngum og hinsvegar bara með skipstjóra og þá til veiðimanna sem koma með stangirnar sínar með sér og eru vanir að veiða. Það verður veiðipláss fyrir 10 til 12 veiðimenn í einu. Svo er verið að gera bótakröfu á Tryggingarmiðstöðina vegna tjónsins hausti 2005 þegar báturinn lá utan á Sifinni bátnum hans Halla Friðriks og Sifin slitnaði frá og Ákinn skemmdist. Þá hefur sennilega komist sjór inn í bátinn vegna öldugangs og lekið inn á aðra vélina. Hún var að minnsta kosti svo föst um vorið að Nanni hefur varla lent í öðru eins. Ákinn var þó inn í húsi allan veturinn á vegum Tryggingamiðstöðvarinnar. Nú erum við búin að fá undirritaða yfirlýsingu frá þeim á verkstæðinu og það er lögfræðingurinn sem er með málið er nokkuð bjartsýnn. Kannski einhverja millur þar. Ég er á fullu að byggja þetta fyrirtæki upp og ætla að gera það öflugt og traust. Það er svo margt spennandi í spilunum. Nú bíð ég bara eftir því að hætta í verkalýðsmálunum og einbeita mér að ferðaþjónustunni. Góða nótt og sofið þið vel elskurnar. Ég elska ykkur öll mamma

Hólmfríður Bjarnadóttir, 23.10.2007 kl. 00:30

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

ég er með netfangið bjarnisaevarsson@gmain.com,

Reyndi að ná í hann um daginn en mig grunar að ég sé ekki heldur með rétt netfang hjá honum.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 25.10.2007 kl. 15:20

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Netfangið hjá Bjarna er örugglega bjarnisaevarsson@gmail.com

Mamma

Hólmfríður Bjarnadóttir, 27.10.2007 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

fridabjarna

Höfundur

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband